SAGAN OKKAR

Benecta er framleitt á Siglufirði og er afraksturinn af meira en tíu ára
rannsóknum og þróun líftækniteymisins okkar á notkun og ávinningi af
kítófásykrum. Við leitumst við að vera vinnusöm, jarðbundin og hjálpsöm
og leggjum áherslu á að vinna í sátt við náttúruna. Segja má að Benecta
hafi mótast af hvoru tveggja í senn, landfræðilegri legu Siglufjarðar og
hugarfari bæjarbúa.

STEFNAN OKKAR

Við trúum því staðfastlega að lífsgæði þurfi ekki að ráðast af „aldri“ fólks
Okkur finnst kominn tími til að endurskoða viðteknar hugmyndir um aldur.
Losum okkur við öll úreltu og aðþrengjandi viðhorfin um hvernig „eldra fólk“
eigi að haga sér. Við ætlum ekki að hörfa hljóðlega inn í ellina og við ætlumst
ekki heldur til þess að viðskiptavinir okkar geri það.

SKULDBINDING OKKAR

Öll framleiðsluferli okkar eru hönnuð til að tryggja hámarksgæði
vörunnar og eru byggð á GMP-stöðlum. Stefna okkur við framleiðsluna
er að skila auknum verðmætum til samfélagsins með minni aðföngum,
sjálfbærri nýtingu auðlinda og lágmarksáhrifum á umhverfið.

You have successfully subscribed!